Hlaðinn veggur í Hveratúni

Magnus Skulason 23. Mai 2016 2 Aufrufe

Beschreibung

Það hefur kannski ekki farið hátt en við hér í Hveratúni erum að taka í gegn gamla húsið hér í Hveratúni. (Afabæ, eins og við köllum húsið)
Það hefur gengið illa að fá múrara í það sem múrarar eiga að gera. Það er nefnilega mikið að gera hjá iðnaðarmönnum um þessar mundir. Þá er bara eitt í stöðunni. Að gera það bara sjálfur. Þó að maður hafi ekki nokkra kunnáttu á þessu sviði. En samtöl, YouTube og smá trú á sjálfan sig dugði til að það var bara hjólað í þetta.